Ríkissjóður Grikklands tók tilboðum fyrir 1,625 milljarða evra í ríkisskuldabréfaútboði í dag. Um er að ræða skammtímabréf og er ávöxtunarkrafan 4,64% í stað 4,68% í síðasta útboði í desember.
Töluverð umframeftirspurn var í útboðinu, samkvæmt upplýsingum frá grískum stjórnvöldum.