Skilvísir einstaklingar í viðskiptum við Arion banka munu á morgun, föstudaginn 27. janúar, fá sérstakan afslátt af greiðslum síðasta árs vegna lána þeirra hjá bankanum. Bankinn segir í tilkynningu, að upphæð sem nemi afslættinum verði lögð inn á reikning þeirra hjá Arion banka.
„Að langstærstum hluta er um að ræða afslátt vegna íbúðalána. Nemur afslátturinn tveimur gjalddögum síðasta árs miðað við að 12 gjalddagar hafi verið greiddir, eða 16,7% af greiddum gjalddögum. Einnig er veittur 30% afsláttur af vaxtagreiðslum síðasta árs vegna yfirdráttarlána,“ segir bankinn.
„Frá því Arion banki var stofnaður hafa aðgerðir bankans fyrst og fremst beinst að þeim hópi viðskiptavina sem glímt hefur við mestan greiðslu- og skuldavanda. Því átaki fer að ljúka og þar með verða ákveðin kaflaskil í starfsemi bankans. Aðgerðin nú er annars eðlis og snertir alla skilvísa lánþega bankans. Hún kemur í kjölfar yfirtöku bankans á lánasafni þrotabús Kaupþings.“
Þá segir að að meðaltali nemi greiðsla vegna íbúðalána 125 þúsund krónum og greiðsla vegna yfirdráttalána 13 þúsund krónum. Samtals fái um 33 þúsund viðskiptavina bankans greitt til baka frá Arion banka á morgun.
Er kostnaður vegna þessa áætlaður um 2,5 milljarðar króna. Þar með sé kostnaður bankans vegna aðgerða er snúi að einstaklingum og heimilum orðinn rúmir 40 milljarðar króna sem sé rúmum 5 milljörðum umfram það svigrúm bankans sem hafi skapast við yfirtöku lánanna.
„Við sem störfum hjá Arion banka höfum undanfarin ár eða frá stofnun bankans fyrst og fremst beint sjónum okkar að úrlausnarmálum viðskiptavina sem glímt hafa við hvað mestan fjárhagsvanda, ásamt því að byggja upp nýjan og traustan banka. Þar hefur umtalsverður árangur náðst. Nýverið tók svo bankinn yfir íbúðalánasafn sem verið hafði í eigu þrotabús Kaupþings og fékk þar með fullt forræði yfir lánasafninu. Hvort tveggja markar ákveðin kaflaskil. Því viljum við nota tækifærið og sýna skilvísum viðskiptavinum okkar þennan þakklætisvott fyrir samstarfið á undanförnum þremur árum,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, í tilkynningunni.