Icelandair skoðar nú möguleika á að skrá félagið á markað í Ósló en um viðbótarskráningu yrði að ræða. Hlutabréf Icelandair eru skráð í Kauphöllinni hér á landi.
Í febrúar 2011 var tilkynnt um þá ákvörðun stjórnar Icelandair Group hf. að kanna skráningu félagsins í aðra kauphöll til viðbótar við núverandi skráningu hjá Nasdaq OMX á Íslandi. Í september síðastliðnum var ferlinu frestað vegna krefjandi aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Breytir um uppgjörsmynt
Icelandair Group hefur ráðið útibú Skandinaviska Enskilda Banken AB í Ósló ásamt Íslandsbanka hf. til að vera umsjónaraðilar í skráningarferlinu. Meirihluti kostnaðar og efnahagsreiknings Icelandair Group er í Bandaríkjadal. Af þessum sökum mun félagið frá og með 1. ársfjórðungi ársins 2012 breyta um uppgjörsmynt og birta reikninga sína í Bandaríkjadal.