Lífeyrissjóðir kaupa í HS Orku

Jarðvarmi slhf., félag 14 lífeyrissjóða sem nú á 25% hlut í HS Orku hf, hefur ákveðið að auka hlut sinn í HS Orku í 33,4% í samræmi við ákvæði samnings félagsins frá 1. júní 2011 um kaup á hlut í HS Orku.

Hlutur Alterra Power, áður Magma Energy,  í HS Orku lækkar samsvarandi úr 75% í 66,6%.

Til þess að þetta verði að veruleika mun Jarðvarmi kaupa ný hlutabréf í HS Orku að nafnvirði 878.205.943 krónur á genginu 5,35 krónur á hlut og er fjárfestingin um 4,7 milljarðar króna. Þetta verð er um 15,6% hærra en verðið í upphaflegu viðskiptunum þegar Jarðvarmi gerðist 25% hluthafi en þá greiddi Jarðvarmi 4,63 krónur fyrir hvern hlut.

HS Orka stefnir að því að þessir fjármunir verði nýttir sem eiginfjárframlag félagsins í stækkun Reykjanesvirkjunar úr 100 MW í 180 MW. Gert er ráð fyrir frágangi málsins fyrir lok febrúar, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK