Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir erlenda viðskiptamenn mæta tortryggni á Íslandi en upplifun hans af erlendri grundu er að honum sé tekið með kostum og kynjum enda erlend fjárfesting ákaflega eftirsótt annars staðar. Þegar hann hóf störf hjá fyrirtækinu voru þar 42 starfsmenn en í dag eru þeir 1850 víðsvegar um heiminn.
Jón er í viðtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar.