Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í dag vegna fregna um að heldur hafi létt á spennunni milli Írans og vesturveldanna.
Í New York hefur verð á hráolíu til afhendingar í apríl lækkað um 62 sent og er 106,10 Bandaríkjadalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á Brent-Norðursjávarolíu lækkað um 73 sent og er 123,07 dalir tunnan.