Seðlabankinn selur gjaldeyri á millibankamarkaði

mbl.is/Reuters

Seðlabanki Íslands seldi í dag 12 milljónir evra á millibankamarkaði fyrir gjaldeyri. Óvenjumikið útstreymi hefur verið á gjaldeyri að undanförnu og telur Seðlabankinn það ástand tímabundið.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að undanþágur frá gjaldeyrislögum sem bankinn hefur veitt nýlega hafi haft í för með sér umtalsverð gjaldeyriskaup á markaði. Áhrif á gengi krónunnar hafi orðið töluverð þar sem kaupin koma fram á sama tíma og innstreymi gjaldeyris vegna utanríkisviðskipta er í minna lagi og afborganir af erlendum lánum hafa verið miklar.

Óæskilegt er að slíkar tímabundnar hreyfingar hafi mikil áhrif á gengi krónunnar. Áður hefur Seðlabankinn keypt töluverðan gjaldeyri af fjármálafyrirtækjum í einstökum viðskiptum auk gjaldeyris sem bankinn kaupir í viku hverri. Aðgerðin í dag er í samræmi við þá stefnu Seðlabankans að eiga viðskipti á gjaldeyrismarkaði þegar þörf krefur í því skyni að draga úr gengissveiflum, segir í tilkynningu bankans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK