Hagvöxturinn 3,1% í fyrra

Reuters

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,1% á árinu 2011 samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands. Þessi vöxtur kemur í kjölfar mikils samdráttar tvö ár þar áður, 4% árið 2010 og 6,8% árið 2009.

Þjóðarútgjöld á árinu 2011 jukust nokkru meira en nam vexti landsframleiðslu, eða 4,7%. Einkaneysla jókst um 4% og fjárfesting um 13,4% en samneysla dróst saman um 0,6%. Útflutningur jókst um 3,2% og innflutningur nokkru meira, eða um 6,4%. Þrátt fyrir þessa þróun varð verulegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2011, eða 133 milljarðar króna.

Aukna fjárfestingu á síðasta ári má meðal annars rekja til mikils innflutnings á skipum og flugvélum en slík fjárfesting hefur lítil sem engin áhrif á landsframleiðslu. Að frádreginni fjárfestingu í skipum og flugvélum jókst fjárfesting á síðasta ári um 7,4%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Hagvöxturinn 1,9% á fjórða ársfjórðungi

Landsframleiðsla jókst um 1,9% að raungildi milli 3. og 4. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,5%. Einkaneyslan jókst um 1,6% og fjárfestingin um 27,5%. Samneysla dróst hins vegar saman um 0,1%. Þá jókst útflutningur um 0,7% og innflutningur um 5,4% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Viðskiptakjör versnuðu á síðasta ári

Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum minnkaði nokkuð á síðasta ári og þrátt fyrir minni afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum dró lítillega úr viðskiptahalla og nam hann 108 milljörðum króna, 6,6% af landsframleiðslu á árinu 2011, en árið áður nam hallinn 114 milljörðum króna, 7,4% af landsframleiðslu.

Viðskiptakjör versnuðu nokkuð á árinu 2011 en minni halli á viðskiptajöfnuði en árið áður olli því að þjóðartekjur jukust meira en nam vexti landsframleiðslu eða um 5,4%. Árið 2010 jukust þjóðartekjur um 1,7% samanborið við 4% samdrátt landsframleiðslu.

Einkaneyslan 52,3% af landsframleiðslu

Einkaneysla sem hlutfall af landsframleiðslu var 52,3% á liðnu ári. Í sögulegu samhengi hefur þetta hlutfall verið mjög lágt síðustu fjögur árin. Samneysla sem hlutfall af landsframleiðslu var 25,2%. Síðastliðin tíu ár hefur þetta hlutfall flest árin verið hærra en nokkru sinni áður.

Hlutfall fjárfestingar af landsframleiðslu var 14,1% á liðnu ári og hefur þetta hlutfall verið í sögulegu lágmarki síðustu þrjú árin. Sambærilegt hlutfall fyrir OECD ríkin í heild hefur verið um eða undir 20% undanfarinn aldarfjórðung. Að raungildi var fjárfestingin á síðasta ári svipuð og árið 1997.

Landsframleiðslan 1.630 milljarðar króna

Landsframleiðsla á liðnu ári nam 1.630 milljörðum króna en það er 96 milljörðum eða 6% hærri fjárhæð en árið áður. Að teknu tilliti til verðbreytinga jókst landsframleiðslan að raungildi um 3,1% samanborið við 4% samdrátt árið áður.

Landsframleiðsla á liðnu ári nemur svipaðri fjárhæð að raungildi og landsframleiðsla áranna 2006 og 2009. Að teknu tilliti til mannfjöldaaukningar, sem nam 0,3%, jókst landsframleiðsla á mann að raungildi um 2,7% árið 2011 en hafði árið áður dregist saman um 3,6%.

Samdrátturinn 2009 ívið meiri en áður var talið

Niðurstöður áranna 2009 og 2010 hafa einnig verið endurskoðaðar lítillega frá því síðustu tölur voru birtar í september 2011. Hagvöxtur á árinu 2010 er óbreyttur, neikvæður um 4%, en endurskoðaðar tölur sýna ívið meiri samdrátt á árinu 2009 en fyrri áætlanir, 6,8% samdrátt í stað 6,7%.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK