Gengið hefur verið frá samningum um kaup Hertz-bílaleigunnar á 422 nýjum Toyotabifreiðum sem afhentar verða fyrir sumarvertíðina í ár. Þetta eru um 255 Aygo, Yaris, Corolla, Auris, Verso, Urban Cruiser og Avensis fólksbílar, um 170 Land Cruiser, Hilux og Rav4 jeppar og jepplingar auk Hiace sem búnir eru fyrir átta farþega auk ökumanns. Með samningum við Hertz er fjöldi Toyotabifreiða sem íslenskar bílaleigur hafa keypt á þessu ári kominn í 630 en það er rúmlega helmingsaukning frá síðasta ári.
„Hjá Hertz leggjum við metnað okkar í að hafa nýja og góða bíla til að bjóða viðskiptavinum okkar,“ er haft eftir Sigfúsi B. Sigfússyni, framkvæmdastjóra Hertz, í fréttatilkynningu.
„Hertz hefur aukið kaup sín á Toyotabifreiðum jafnt og þétt síðastliðin ár og fjölgar nýjum Toyotabifreiðum sem Hertz kaupir nú um tæp 40% milli ára,“ er haft eftir Haraldi Þ. Stefánssyni, framkvæmdastjóra Toyota í Kópavogi, í tilkynningunni.