Ef fallist verður á tillögu stjórnar Icelandair Group um arðgreiðslu mun félagið greiða 800 milljónir króna í arð í apríl.
Eins og fram kom í tillögum stjórnar Icelandair Group hf. til aðalfundar félagsins árið 2012 er lagt til að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,16 krónum á hlut. Arðurinn verður greiddur í íslenskum krónum.
Útborgunardagur arðgreiðslu verður 20. apríl 2012, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.