Setur hugsanlega lágmarksverð í útboði

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir

Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt að hugsanlega verði sett lágmarksverð í útboði sem fram fer í dag á erlendum gjaldeyri. Hugsanlegt lágmarksverð er kr. 255 per EUR.

„Í 4. gr. útboðsskilmála vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri vegna útboðs sem fram fer í dag á milli 13:00 og 14:00 er kveðið á um að vísbending um hugsanlegt lágmarksverð í útboðinu verði tilkynnt á heimasíðu Seðlabankans og viðskiptavökum á millibankamarkaði fyrir gjaldeyri einum og hálfum tíma fyrir útboð. Fyrrgreint hugsanlegt lágmarksverð er kr. 255 per EUR.

Sérstök athygli er vakin á að ofangreind vísbending um hugsanlegt lágmarksverð er með engum hætti skuldbindandi fyrir Seðlabankann sem áskilur sér allan rétt til þess að ákveða lægsta verð (lágmarksverð) eftir að tilboðsfrestur rennur út sbr. 4. gr. útboðsskilmálanna,“ segir í tilkynningu frá Seðlabanka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka