Allmargar erlendar rannsóknir hafa um nokkurt skeið sýnt fram á að
samband sé milli markaðshneigðar og afkomu fyrirtækja. Ákveðnar
efasemdir hafa komið fram um að þetta samband sé til staðar á
íslenskum fyrirtækjamarkaði. Ný íslensk rannsókn sem niðurstöður voru
kynntar úr fyrir örfáum dögum sýnir og staðfestir að sterkt samband er
á milli markaðshneigðar og afkomu íslenskra fyrirtækja í gegnum
markaðslega færni. Friðrik Eysteinsson er gestur Viðars Garðarssonar í
Alkemistanum þessa viku og þessi nýja íslenska rannsókn er
viðfangsefni þeirra.