Samkeppniseftirlitið hefur lagt 440 milljóna sekt á Símann fyrir brot á samkeppnislögum. Lagðar eru 390 milljónir króna sektir á Símann fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu á farsímamarkaði og 50 milljón króna sektir fyrir ranga og misvísandi upplýsingagjöf í málinu.
Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar kæru Nova vegna verðlagningar Símans á farsímamarkaði. Í ákvörðun, sem er birt í dag, kemst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga og 54. gr. EES-samningsins með því að beita keppinauta sína samkeppnishamlandi verðþrýstingi.
Verðþrýstingur felst í aðalatriðum í því að markaðsráðandi fyrirtæki stjórnar framlegð á milli heildsölustigs og smásölustigs í m.a. þeim tilgangi að gera nýjum keppinautum erfiðara fyrir að ná fótfestu á smásölumarkaði. Í slíku tilviki er viðkomandi fyrirtæki markaðsráðandi á heildsölustigi og starfar einnig á tengdum smásölumarkaði.
Í fréttatilkynningu segir að fyrirtæki selji í heildsölu mikilvæga vöru og þjónustu til annarra fyrirtækja sem nýta hana í starfsemi sinni á smásölumarkaði. Þar eiga fyrirtækin í samkeppni við smásöluhluta hins markaðsráðandi fyrirtækis, í þessu tilviki Símann. Brotið getur falist í óeðlilega hárri verðlagningu á heildsöluaðfanginu sem gerir rekstur keppinauta á smásölumarkaði óarðbæran eða dregur úr hagnaði þeirra og vinnur þar með gegn því að þeir geti keppt af krafti á smásölumarkaðnum, almenningi til hagsbóta.
Síminn var á árum áður í einokunarstöðu í fjarskiptum og sökum m.a. þess hefur fyrirtækið haft í viðskiptum langflesta farsímanotendur. Keppinautar Símans geta ekki starfað á farsímamarkaði nema viðskiptavinir þeirra geti hringt í viðskiptavini Símans. Til þess að það sé unnt þarf t.d. Nova að greiða Símanum fyrir lúkningu símtala sem byrja í kerfi Nova en enda í kerfi Símans. Lúkningargjaldið er þannig hluti af heildsöluverði símtalsins en smásöluverðið er það verð sem Nova innheimtir af sínum viðskiptavinum.
„Á stærstum hluta brotatímabilsins var þetta heildsöluverð Símans til keppinauta hærra en smásöluverð Símans á símtölum milli viðskiptavina í farsímaþjónustu fyrirtækisins (innankerfissímtöl). Þýddi þetta að hefði smásöludeild Símans þurft að greiða heildsöluhluta Símans sama heildsöluverð og keppinautarnir hefði hún tapað á hverju símtali. Er því ljóst að keppinautar Símans gátu ekki verðlagt símtöl í farsímanet Símans, með sambærilegum hætti og innankerfissímtöl hjá Símanum án þess að verða fyrir tapi þar sem langflestir notendur voru í viðskiptum hjá Simanum. Þetta hefur m.a. leitt til þess að Nova hefur neyðst til að veita ókeypis símtöl innankerfis í farsímakerfi félagsins til að eiga kost á því að laða til sín viðskiptavini í samkeppni við Símann. Sú stefna hefur ekki verið sjálfbær enda hefur Nova verið rekið með miklu tapi fyrstu starfsár félagsins. Þessi ólögmæta verðstefna Símans var til þess fallin að verja markaðsráðandi stöðu félagsins og hafði þær afleiðingar að skapa ójafnvægi í verðlagningu símtala á smásölumarkaði eftir því hvort þau voru innankerfis í sama farsímakerfi eða milli farsímakerfa,“ segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.
Samkeppniseftirlitið segir að gagnsæi í smásöluverði símtala sé mjög takmarkað þar sem neytendum sé ekki fyllilega ljóst hvort verið sé að hringja innankerfis eða milli farsímakerfa þar sem mínútuverð símtala getur verið meira en tvöfalt hærra en fyrir innankerfissímtöl. „Ljóst er að á brotatímabilinu hafa fjarskiptafélög bæði hætt við að hefja hér starfsemi á farsímamarkaði auk þess sem keppinautum hefur fækkað með samruna eftir viðvarandi taprekstur þeirra í samkeppni við Símann á viðkomandi markaði. Umrædd brot Símans áttu sér stað á árunum 2001 til ársloka 2007 og teljast mjög alvarleg. Þá hefur Síminn áður brotið gegn samkeppnislögum og er í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins talið hæfilegt að leggja á fyrirtæki sekt að fjárhæð 390 mkr. Er það hæsta sekt sem lögð hefur verið á fyrirtæki hér á landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.“