Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem honum var birt var í dag, til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Málið varðar verðlagningu Símans á farsímamarkaði. Samkeppniseftirlitið hefur lagt 440 milljóna sekt á Símann fyrir brot á samkeppnislögum. Lagðar eru 390 milljónir króna sektir á Símann fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu á farsímamarkaði og 50 milljón króna sektir fyrir ranga og misvísandi upplýsingagjöf í málinu.
Af þessu tilefni vill Síminn taka fram eftirfarandi:
- Verðákvarðanir og verðstefna Símans lúta ströngu eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar og tilgangur Símans er ávallt að mæta samkeppni á eðlilegan hátt.
- Í rökum Samkeppniseftirlits er á því byggt að sökum stærðar kerfis Símans sé algengara að viðskiptavinir annarra símafyrirtækja hringi í kerfi Símans en öfugt og að það veiti Símanum forskot í samkeppni. Þetta er einfaldlega rangt. Ný fyrirtæki á markaði njóta svokallaðs jákvæðs mismunar og hefur Síminn því greitt meira til þeirra vegna millikerfasímtala en þau til Símans. Nam mismunurinn yfir hið ætlaða brotatímabil 2,4 milljörðum króna Símanum í óhag.
- Síminn telur að í þessu máli hafi Samkeppniseftirlitið ekki virt þá frumskyldu sína að vernda samkeppnina heldur sé verið að fordæma eðlilega háttsemi á samkeppnismarkaði til að vernda tiltekna keppinauta félagsins. Slík framganga er til þess fallin að skaða samkeppni og vera neytendum til tjóns þegar til lengri tíma er litið.
- Síminn telur sig hafa góðan málstað að verja og byggir afstöðu sína meðal annars á áliti virts ráðgjafarfyrirtækis, Copenhagen Economics, varðandi álitaefnin sem hér er um rætt. Copenhagen Economics hefur víðtæka þekkingu á sviði samkeppnisréttar, einkum er varðar fjarskiptamarkaði. Hefur fyrirtækið m.a. unnið fyrir framkvæmdastjórn ESB og ýmsar fjarskiptaeftirlitsstofnanir, þ.m.t. póst- og fjarskiptastofnun Noregs.
- Meginniðurstaða álitsgerðar Copenhagen Economics er sú að aðferðafræði Samkeppniseftirlitsins samræmist hvorki aðferðafræði evrópskra eftirlitsstofnana né ríkjandi sjónarmiðum í evrópskum samkeppnisrétti og hagfræðilegum rökum. Þá gangi mat Samkeppniseftirlitsins ekki upp sé litið til þróunar á íslenskum farsímamarkaði síðastliðinn áratug.