Póst- og fjarskiptastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að Já upplýsingaveitur séu fjarskiptafyrirtæki í skilningi laga og hafi því mátt ganga til samstarfs við Borgarleikhúsið um efnistök og myndskreytingar í símaskránni.
Þjóðleikhúsið lagði fram kvörtun til Póst- og fjarskiptastofnunar og laut hún að þeirri ákvörðun Já upplýsingaveitna ehf. (Já) að fela Leikfélagi Reykjavíkur (Borgarleikhúsinu) efnistök í símaskrá og vinnu við myndskreytingar ásamt því að vera nefnt sem samstarfsaðili um útgáfu símaskrár.
Taldi Þjóðleikhúsið m.a. markaðslegt ranglæti felast í að Borgarleikhúsinu væri veittur þessi aðgangur að símaskránni og eðlilegt væri að tekið yrði til skoðunar hvort regluverk og lög stæðust í öllum tilfellum. Til dæmis vildi Þjóðleikhúsið fá skorið úr um hvort Já geti talist fjarskiptafyrirtæki í skilningi laga nr. 81/2003 um fjarskipti og falli undir skilgreiningu þeirra um að teljast fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk. Í kvörtuninni var þess krafist að umrætt samkomulag milli Já og Borgarleikhússins yrði afturkallað.
Í ákvörðun sinni kemst PFS að þeirri niðurstöðu að Já teljist vera fjarskiptafyrirtæki í skilningi laga um fjarskipti nr. 81/2003 og hafnar kröfu Þjóðleikhússins um ógildingu og afturköllun á ákvörðun PFS nr. 22/2011 um útnefningu Já upplýsingaveitna með alþjónustuskyldur. Ennfremur vísar PFS frá kröfu Þjóðleikhússins um að ógilda samkomulag milli Já og Borgarleikhússins í tengslum við útgáfu símaskrár.