Af öllu því áli sem hefur verið búið til frá því það var fyrst framleitt árið 1888 hafa 75% af því verið endurunnin eða eru enn í notkun.
Þetta segir Rosa Garcia Pineiro, framkvæmdastjóri umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismála frumframleiðslu Alcoa í Evrópu í samtali í Morgunblaðinu í dag. Þegar allt ferlið sé skoðað frá upphafi til enda sé álið umhverfisvænt að hennar mati.