Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti og að meiri líkur séu á 0,25 prósenta hækkun en 0,5.
Samhliða vaxtaákvörðuninni mun SÍ kynna nýja þjóðhags- og verðbólguspá. Hagfræðideild telur líklegt að SÍ muni endurskoða verðbólguspá sína upp á við.