72% á markað í Evrópu

72% af heildarútflutningi sjávarafurða á síðasta ári fór á markað á evrópska efnahagssvæðinu, 8,8% fóru til Asíu og 4,9% til Afríku. Þetta kemur fram í ritinu Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2011 sem Hagstofa Íslands gefur út.

Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2011 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 256 milljörðum króna og jókst um 7,8% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 10,3%.

Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 252 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 14,1% og í magni um 6,4%.

Árið 2011 voru flutt út 672 þúsund tonn samanborið við 632 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 57% af heildarútflutningsverðmæti. Af einstökum afurðum vó verðmæti heilfrysts makríls mest, 24 milljarðar króna.

Ritið í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK