Sett hefur verið upp lánareiknivél á vef Já Ísland þar sem hægt er að bera saman hvað kostar að taka húsnæðislán á Íslandi og hvað það kostar í evruríki.
Hægt er á slá inn húsnæðislánið sem tekið var á tímabilinu 2000-2011 í reiknivélinni í íslenskum krónum og reiknivélin sýnir hverjar eftirstöðvar lánsins eru í dag og hverjar þær væru ef þú hefðir tekið lán á meðaltals vöxtum á evru-svæðinu, segir í tilkynningu.