Samtök stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík verða með aðalfund í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í kvöld kl. 18.
Lögmaður félagsins, Sigríður Rut Júlíusdóttir, mætir og ræðir mögulega málsókn á hendur yfirmönnum Sparisjóðsins í Keflavík, svo og stjórn og endurskoðendum sparisjóðsins, segir í tilkynningu frá stjórn samtakanna.
Kynnt verður rannsóknarvinna sem stjórnin hefur staðið fyrir.
Fjarfundarbúnaður verður í samvinnu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja, Háskólasetur Vestfjarðar, Farskólinn í Borgarnesi, Símenntun Vesturlands og fleiri