Finnland mun óska eftir frekari tryggingum fyrir lánveitingum til Kýpur ef evrópsk aðstoð, sem Kýpur hefur óskað eftir, á að vera fengin úr evrópska fjármálastöðugleikasjóðnum (e. EFSF). Þetta sagði forsætisráðherrann Jyrki Katainen í ræðu til þingsins fyrr í dag. Finnland hefur áður farið sér varlega þegar kemur að aðstoð við önnur Evrópuríki vegna fjármálakrísunnar og stoppuðu björgunarpakkann til Grikklands í nokkurn tíma meðan semja þurfti um tryggingar og áætlanir.
Finnland, eitt af fáum ríkjum Evrópusambandsins sem er enn með AAA í lánshæfismat, hefur einnig sagt að ef það eigi að taka þátt í að aðstoða Spán vilji það fá auknar tryggingar og hlutabréf í spænskum bönkum.