Mikil hækkun á vísitölu neysluverðs í júní hefur komið mörgum greiningaraðilum á óvart og hefur verið bent á að hækkun á innlendum vörum hefur verið umfram innfluttar vörur og almenna verðlagsþróun. Þetta skýtur skökku við þar sem krónan hefur verið að styrkjast upp á síðkastið. Greiningardeild Arion banka bendir á þetta í markaðspunktum sínum og segir:
„Að sjálfsögðu vekur þessi þróun hins vegar upp spurningar hvort kostnaðarhækkanirnar nægi raunverulega til að skýra 6% árshækkun innlendra vara, samanborið við 3,8% hækkun á innfluttum vörum!“
Í samtali við Gylfa Arnbjörnsson, forseta Alþýðusambands Íslands, tekur hann fyrir að launahækkanir ættu að koma inn í verðlag núna.
„Launahækkanirnar voru 3,5% 1. febrúar. Svo ætla menn að fara að halda því fram að það sé að valda einhverjum hækkunum núna. Það er ekkert í launabreytingum sem kallar á 0,5% hækkun milli mánaða.“
Greiningaraðilar spá allir lækkun vísitölu í næsta mánuði og segir Gylfi að fyrirtækjum beri að bregðast við slíku með lækkun verðs. Styrking krónunnar síðustu misseri kalli ennfremur á lækkanir, annað muni orsaka viðbrögð launþega enda sé almenningur ekki aflögufær fyrir hækkunum umfram vísitölubreytingu.
„Ef þetta heldur svona áfram er nokkuð ljóst að við munum þurfa að bregðast við þessu í formi kröfugerðar í kjarasamningum. Almenningur er ekki aflögufær með þetta. En nú er allavega tilefni til að hún [veiking krónunnar] gangi til baka og auðvitað vænti ég þess að fyrirtækin skili því. Þau eru nú nógu fljót til að hækka þegar krónan veikist.“