Það er skammt stórra högga á milli hjá breskum bönkum þessa dagana. Í fyrradag var greint frá því að Barclays bankinn hefði hlotið háa sekt vegna ólöglegrar hagræðingar á millibankavöxtum en auk þess hefur tölvukerfi Royal Bank of Scotland valdið ítrekuðum vandræðum og urðu milljónir viðskiptavina bankans fyrir miklum truflunum með greiðslur í vikunni vegna þess.
Í dag bættist svo við að breska fjármálaeftirlitið hefði fundið mikla ágalla á sölu bankanna Barclays, HSBC, Lloyds og Royal Bank of Scotland á vaxtavörnum síðustu 11 ár. Í tilkynningu frá eftirlitinu kemur fram að þeir hafi náð samkomulagi við bankana um: „viðeigandi leiðréttingu þar sem ágallar í sölu áttu sér stað“.