Hagnaður Haga nam 628 milljónum króna á fyrsta fjórðungi rekstrarársins, en það svarar til 3,6% af veltu. Um er að ræða tímabilið 1. mars 2012 – 31. maí 2012.
Verið er að skoða hvort fjölga eigi Bónusverslunum keðjunnar en ekki hafa verið teknar ákvarðanir um stórar fjárfestingar eða fjölgun verslana.
Vörusala nam 17.364 milljónum króna, samanborið við 16.498 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Söluaukning félagsins er því 5,2% milli ára.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 1.137 milljónum króna, samanborið við 1.037 milljónir króna árið áður. Framlegð félagsins er 4.185 milljónir króna samanborið við 3.879 milljónir króna árið áður eða 24,1% samanborið við 23,5%.
Annar rekstrarkostnaður er nokkuð sambærilegur milli ára sem hlutfall af veltu, eða 17,7% samanborið við 17,4% í fyrra. Kostnaðarhækkanir milli ára skýrast að mestöllu leyti af vísitölutengdum kostnaðarhækkunum og kjarasamningshækkunum launa, segir í tilkynningu frá Högum.
Hagnaður rekstrarársins fyrir skatta nam 797 milljónum króna, samanborið við 696 milljónir króna árið áður.
Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 24.636 milljónum króna. Fastafjármunir voru 12.493 milljónir króna og veltufjármunir 12.143 milljónir króna. Birgðir hafa aukist á tímabilinu en það er nokkuð eðlilegt í rekstri félagsins þar sem birgðir ná yfirleitt lágmarki í lok febrúar og hækka svo aftur þegar nær dregur sumri.
Eiginfjárhlutfallið 28%
Eigið fé félagsins var 6.897 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 28,0%. Eiginfjárhlutfall í lok síðasta rekstrarárs var 26,6%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 17.739 milljónir króna, þar af eru langtímaskuldir 9.963 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 7.150 milljónir króna en í apríl nýtti félagið heimild sína til aukalegrar innborgunar á lán félagsins eða að upphæð 500 milljónir króna. Innra virði hlutafjár í lok tímabilsins er 5,88 samanborið við 5,31 í lok síðasta rekstrarárs.
Handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins var 1.347 milljónir króna samanborið við 391 milljón króna á sama tíma í fyrra. Handbært fé í lok tímabilsins var 2.773 milljónir króna samanborið við 1.204 milljónir króna árið áður.
Gert er ráð fyrir að rekstur Haga á árinu verði sambærilegur við niðurstöðu síðasta árs. Það er þó ljóst að enn er nokkur óvissa í efnahagslífinu sem hefur áhrif á hag heimilanna, sem eru stærsti viðskiptavinur Haga. Auk þess hefur samkeppnin á matvörumarkaði ávallt verið mikil og líkur á að svo verði áfram, segir í tilkynningu.