Eignir lífeyrissjóða námu 2.241 milljörðum

Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.241 milljörðum króna í lok maí. Hrein eign hafði þar með hækkað um tæpa 4 milljarða frá apríl eða um 0,2%.

Innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða hækkaði um 17,7 milljarða og nam 1.633, milljörðum króna. Þar af hækkuðu skuldabréf útgefin ríkissjóði um 13,4 milljarða milli mánaða og íbúðabréf um 4 milljarða. Erlend verðbréfaeign lækkaði hins vegar um 16,2 milljarða frá apríl og nam 499 milljörðum í lok maí. Þar af lækkaði eign í erlendum hlutabréfasjóðum um 13,8 milljarða og erlend hlutabréf um 1,8 milljarða. Af öðrum breytingum má nefna að skuld vegna afleiðusamninga lækkaði um 7,7 milljarða í mánuðinum og innlán lífeyrissjóða lækkuðu um tæpa 2 milljarða. Þá lækkuðu aðrar eignir lífeyrissjóða um 3,3 milljarða í maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK