Franski bílaframleiðandinn PSA Peugeot Citroen ætlar að segja upp átta þúsund starfsmönnum í Frakklandi en mikill samdráttur er í sölu hjá fyrirtækinu í Evrópu. Tap var á rekstri fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi.
Fréttir um að tíu þúsund myndu jafnvel missa vinnuna reyndust því ekki á rökum reistar.
PSA, er stærsti bílaframleiðandi Frakklands og annar stærsti í Evrópu á eftir Volkswagen, á von á því að samdrátturinn verði 8% í ár og því hafi þurft að bregðast við með uppsögnum og samdrætti í starfsemi.
Á tímabilinu 2007-12 er samdrátturinn 23% og hafa verksmiðjur fyrirtækisins ekki verið reknar á fullum afköstum undanfarna mánuði.
Rekstrartap PSA er um 700 milljónir evra á fyrstu sex mánuðum ársins en endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir.
PSA mun loka verksmiðju sinni í Aulnay, sem er skammt frá París, en þar starfa þrjú þúsund. Eins verður fækkað í verksmiðju í Rennes um 1.400. Auk þess munu 3.600 missa vinnuna annars staðar í fyrirtækinu og áfram verður unnið að því að draga úr kostnaði.