Hækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag. FTSE-vísitalan hækkaði um 0,50% og DAX-vísitalan í Frankfurt um 1,11%. Þá varð einnig hækkun í París og nam hún 0,87%.
Það sama var upp á teningnum er mörkuðum í Asíu var lokað í morgun. Hækkun varð á helstu vísitölum álfunnar.