Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og François Hollande, forseti Frakklands, segjast ætla að „gera allt til að verja evrusvæðið“ að því er fram kom í sameiginlegri yfirlýsingu frá þjóðarleiðtogunum. Sagði einnig í henni að „Þýskaland og Frakkland eru mjög skuldbundin því að hafa heilsteypt evrusvæði“. Þau taka því í svipaðan streng og seðlabankastjóri Evrópu, Mario Draghi, sem sagði í gær að seðlabankinn myndi aðstoða evruna eftir fremsta megni.
Merkel og Hollande héldu í dag símafund þar sem skuldamálefni Evrópu voru rædd og þá sérstaklega staða Spánar. Hollande hafði fyrr í vikunni sagt að hann vildi að þeim umbótum sem samþykktar hefðu verið af ráðamönnum Evrópusambandsins í síðasta mánuði yrði hraðað og þær kæmu til framkvæmda sem fyrst. Hafði þar verið ákveðið hvernig evrópski björgunarsjóðurinn gæti t.a.m. aðstoðað ákveðna banka með endurfjármögnun beint í stað þess að lána til ríkisstjórna sem svo útdeildu til bankanna.
Í yfirlýsingu frá ríkisstjórn Spánar í dag kom fram að neyðaraðstoð væri útilokuð, þrátt fyrir miklar vangaveltur markaðarins um slíkt eða utanaðkomandi aðstoð. Hagfræðingar hafa aftur á móti varað við að staðan á Spáni sé mjög veik og ekki þurfi mikið út af að bregða til að 100 milljarða lán Evrópuríkja til Spánar dugi ekki til að koma í veg fyrir hrun. Atvinnuleysi þarlendis hefur t.d. aukist upp á síðkastið og er núna yfir fjórðungur á atvinnuleysisskrá á Spáni.