SÍ eykur regluleg gjaldeyriskaup

mbl.is/Ernir

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að auka regluleg gjaldeyriskaup bankans af viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði, um ótiltekinn tíma frá og með 31. júlí 2012.

Fram kemur í tilkynningu frá SÍ, að frá septembermánuði árið 2010 hafi bankinn keypt vikulega hálfa milljón evra af hverjum viðskiptavaka á millibankamarkaði með gjaldeyri. Kaupin hafi farið fram á þriðjudögum.

Þá segir að frá og með morgundeginum muni bankinn kaupa eina milljón evra vikulega af hverjum viðskiptavaka.

„Aukið innflæði og styrking krónunnar gefa svigrúm til þess að auka nokkuð kaup Seðlabankans. Telur bankinn æskilegt að gjaldeyriskaupin standi undir vaxtagreiðslum vegna erlendra skulda ríkissjóðs og að hlutfall óskuldsetts gjaldeyrisforða hækki til lengri tíma litið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK