HB Grandi tapaði 1,5 milljónum evra á fyrri hluta ársins, en tekjur félagsins jukust á sama tíma um 17 milljónir evra. Skýringu tapsins má rekja til virðisrýrnunar sem varð á aflaheimildum, en gert var virðisrýrnunarpróf sem sýnir að rekstrarvirði félagsins lækkar um 136 milljónir evra (22,3 milljarðar króna) og fer úr 397 milljónum evra í 261 milljónir og er skýrt með hækkun á veiðigjaldi.
Rekstrartekjur á fyrri hluta ársins voru 93,3 milljónir evra og fóru upp frá 76,3 milljónum árið áður. Laun og launatengd gjöld námu samtals 4,7 milljörðum króna en 4,6 milljörðum á sama tíma árið áður.
Heildareignir félagsins námu 296,8 milljónum evra í lok júní 2012. Þar af voru fastafjármunir 240,4 milljónir evra og veltufjármunir 56,3 milljónir evra. Eigið fé nam 171,0 milljónum evra og var eiginfjárhlutfall 57,6%, en var 54,4% í lok árs 2011. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 125,8 milljónir evra.