Brasilíska flugfélagið GOL hefur pantað 60 Boeing 737 MAX-þotur, samkvæmt tilkynningu frá bandaríska flugvélaframleiðandanum.
Er þetta stærsta flugvélapöntun sem flugfélag í Suður-Ameríku hefur lagt fram en vélarnar kosta samkvæmt listaverði 6 milljarða Bandaríkjadala, 744 milljarða króna.