Heimsmarkaðsverð á olíu hefur haldið áfram að lækka í dag en verð á hráolíu lækkaði í síðustu viku einkum og sér í lagi eftir minni eftirspurn.
Verð á Brent-Norðursjávarolíu til afhendingar í nóvember hefur lækkað um 1,27 Bandaríkjadali og er 111,37 dalir tunnan.
Í New York hefur verð á hráolíu til afhendingar í nóvember lækkað um 1,12 dali og er 88,76 dalir tunnan.