Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember 2012 er 115,5 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 0,5% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni hækkaði um 1,6% (áhrif á vísitölu 0,4%) og verð á innlendu efni hækkaði um 0,2% (0,1%).
Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,5%.