Hagnaður Íslandsbanka nam 16,2 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en var 11,3 milljarðar fyrstu þrjá ársfjórðunga 2011. Hagnaður eftir skatta á þriðja ársfjórðungi var 4,6 milljarðar samanborið við 3,3 milljarða á þriðja ársfjórðungi 2011.
Hagnaður eftir skatta af reglulegri starfsemi var 10,8 milljarðar fyrstu 9 mánuði ársins, samanborið við 11,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Skattar og gjöld greidd ríkisstofnunum voru 6,7 milljarðar á tímabilinu, samanborið við 4,5 milljarða á sama tímabili árið 2011.
Nettó tekjufærsla vegna endurmats lánasafnsins var jákvæð um 2,8 milljarða á tímabilinu, samanborið við 0,8 milljarða gjaldfærslu á sama tímabili í fyrra, segir í tilkynningu.
Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 16,3%, samanborið við 11,9% á sama tímabili 2011. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi var 10,9%, samanborið við 12,0% á sama tímabili árið 2011.
Eftirgjöf og leiðréttingar á skuldum nema 420 milljörðum króna
Frá stofnun bankans hafa um 19.300 einstaklingar og um 3.340 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema um 420 milljörðum króna.
Heildareignir við lok þriðja ársfjórðungs námu 813 milljörðum, samanborið við 796 milljarða í árslok 2011. Heildarinnlán við lok ársfjórðungsins námu 524 milljörðum, en 526 milljörðum í árslok 2011. Vaxtamunur var 3,9% á tímabilinu, en 4,8% á sama tímabili 2011.
Eigið fé 140 milljarðar króna
Eigið fé nam 140 milljörðum í lok tímabilsins, sem er hækkun um 13,2% frá árslokum 2011. Eiginfjárhlutfall Íslandsbanka var 24,3% í lok tímabilsins, hinn 30. september.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir stjórnendur bankans sjá skýr merki þess að markaðir eru að lifna við.
„Íslandsbanki hafði umsjón með skuldabréfaútboði Eikar fasteignafélags en útboðið var það stærsta hjá einkaaðila frá árinu 2008 og markar ákveðin tímamót í fyrirtækjafjármögnun. Þá hafði Íslandsbanki umsjón með skráningu hlutabréfa Eimskipa og er að vinna að fyrirhugaðri skráningu hlutabréfa Vodafone í kauphöllina auk þess sem unnið er að skráningu annarra stórfyrirtækja á markað.
Útgáfa á sértryggðum skuldabréfum bankans hélt áfram, tveir flokkar hafa verið stækkaðir og í október gaf bankinn í fyrsta sinn út óverðtryggðan flokk. Umframeftirspurn var í báðum útboðum en Íslandsbanki hefur nú gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð 11,4 milljarða frá því í desember 2011.
Dómur Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar sem féll í október víkkaði fordæmisgildi Hæstaréttardóms frá febrúar vegna endurútreiknings ólögmætra gengistryggðra lána.
Áður höfðu bankarnir valið 11 prófmál til að svara þeim álitamálum sem enn voru uppi eftir dóminn í febrúar. Íslandsbanki telur að flestum þessara álitamála hafi verið svarað í dómnum í október og féll því frá þremur dómsmálum til að flýta endurútreikningi. Bankinn stendur við fyrri yfirlýsingar sínar um að betri réttur viðskiptavina gildi og mun nú endurreikna 14.000 ólögmæt gengistryggð lán,“ segir Birna í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka.