Icelandair kaupir allt sitt eldsneyti á Íslandi af N1

Kristján Arason, yfirmaður sölusviðs N1, Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, …
Kristján Arason, yfirmaður sölusviðs N1, Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Icelandair mun áfram kaupa eldsneyti fyrir flugflota sinn af N1 næstu árin. Forsvarsmenn félaganna tveggja undirrituðu samning þessa efnis í dag að lokinni verðkönnun og gildir hann til þriggja ára. Nýr samningur tekur gildi í byrjun næsta árs en Icelandair hefur keypt allt sitt eldsneyti á Íslandi af N1 frá árinu 2006.

Forystumenn beggja félaga segja samninginn tryggja framhald ánægjulegs samstarfs og segja hann mikilvæga stoð í rekstrinum næstu árin.

„Við leitum stöðugt leiða til að auka hagkvæmni. Reynsla okkar af viðskiptum við N1 undanfarin ár hefur uppfyllt okkar kröfur um trausta og góða þjónustu.  Við erum því mjög ánægð með að halda þeim viðskiptum áfram næstu árin,” er haft eftir Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair, í fréttatilkynningu.

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, segir ánægjulegt að nýr samningur hafi náðst. „Þetta er mjög góð lending fyrir bæði fyrirtækin. Við erum stolt af því að styðja við þá grunnstoð íslenskrar ferðaþjónustu, sem er Icelandair.  Það er okkur líka mikill heiður að svo kröfuharður viðskiptavinur sem Icelandair treysti okkur áfram til að sjá þeim fyrir eldsneyti hér á landi.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK