Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) telur að Síminn skuli veita öðrum fjarskiptafyrirtækjum aukinn heildsöluaðgang að VDSL- og ADSL-kerfum sínum á kostnaðargreindu verði. VDSL-kerfi Símans, öðru nafni Ljósnet Símans, er háhraðanetkerfi sem Síminn hefur verið að byggja upp síðustu misseri og býður upp á mun öflugri og hraðari gagnaflutning en hin eldri ADSL-tækni.
„Segja má að ákvörðunin sé tvíþætt. Annars vegar er kveðið nákvæmlega á um hvernig Síminn skuli standa að því að veita þennan aukna aðgang með svokallaðri „aðgangsleið 1“. Hins vegar skal aðgangurinn vera þannig að fyrirtækin geti stýrt gæðum tenginganna og þar með verði þeim mögulegt að nota kerfi Símans til að bjóða aðra þjónustu en venjulega internetþjónustu, t.d. heimasíma um nettengingu (VoIP) og stafrænt, gagnvirkt sjónvarp (IPTV).
PFS telur ákvörðunina nú mikilvægt skref til að efla samkeppni á gagnaflutningsmarkaði en þess má geta að net annarra netrekenda, t.d. Gagnaveitu Reykjavíkur og Tengis, eru opin öllum þjónustuveitendum með möguleikum til gæðastýringar og fjölbreytni í þjónustu.
Samkvæmt ákvörðuninni skal Síminn hafa umræddan aðgang tilbúinn og afhenda PFS bráðabirgðaverð fyrir hann eigi síðar en 1. febrúar nk. Mun stofnunin í framhaldi af því fara yfir verð og kostnaðargreiningu Símans og mæla fyrir um endanlegt verð með ákvörðun,“ segir í frétt á vef PFS.