SA: Miklar hækkanir falla hugsanlega niður

Kaupmáttarforsenda gildandi kjarasamninga á almennum vinnumarkaði hefur staðist að mati Samtaka atvinnulífsins. Mat á forsendum samninganna stendur nú yfir af hálfu SA og ASÍ.

SA munu ekki hafa frumkvæði að því að segja samningunum upp en haldi þeir gildi sínu munu almenn laun hækka um 3,25% hinn 1. febrúar nk. auk þess sem lágmarksmánaðarlaun hækka enn frekar, eða um 11.000 kr.

Þetta kemur fram á vef SA, en þar segir að hækkun lágmarkslauna nemi því 5,7%. Lægsti kauptaxti verkafólks hækki um 6,1%. Taxtar verslunarfólks hækki um 4,9-5,9% en taxtar iðnaðarmanna um 3,6-4,4% eins og sjá má í töflu á vef SA.

Þá kemur fram að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segi að þær forsendur sem hafi brostið í samningunum, þ.e. lítill hagvöxtur, litlar fjárfestingar og skattahækkanir, komi illa niður á fyrirtækjunum. Svigrúm þeirra til að hækka laun nú sé minna en þegar samið hafi verið í maí 2011.

„Stjórnvöld hafa ekki staðið við að lækka tryggingagjald í samræmi við minnkandi atvinnuleysi og rúma fjárhagsstöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs. Launagreiðendur á Íslandi þurfa því að borga aukalega um sex milljarða króna á árinu 2013 til ríkisins sem verður til þess að svigrúm til að hækka laun minnkar, færri verða ráðnir í ný störf og verðbólga hjaðni minna en ella,“ segir á vef SA.

Þá segir, að SA hafi varað við því að enn frekari hækkun launa en samið hafi verið um þann 1. febrúar nk. myndi kynda undir verðbólgu og á endanum skerða kaupmátt en ekki auka hann. Ísland skeri sig úr öðrum ríkjum hvað varði miklar launahækkanir og háa verðbólgu.

„Laun á Íslandi hafa hækkað þrefalt meira en á Norðurlöndum síðustu þrjú ár skv. nýlegri skýrslu OECD. Á árabilinu 2010 til 2012 hækkuðu laun á Íslandi um 21,5% en til samanburðar hækkuðu laun á Norðurlöndum að meðaltali um 8,7% á þessum þremur árum. Í Evrópusambandinu hækkuðu laun að meðaltali um 5,1% og í OECD-ríkjunum um 6,5%. Olíuríkið Noregur kemur næst Íslandi í launahækkunum en þar ríkir mikil þensla á vinnumarkaði og eftirspurn eftir starfsfólki,“ segir á vef SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK