Selur meirihlutann í Iceland

Iceland verslunin Engihjalla
Iceland verslunin Engihjalla mbl.is/Hjörtur

Félag í eigu Árna Péturs Jónssonar hefur keypt 51% hlut í fyrirtækinu Ísland-Verslun hf. sem á og rekur matvöruverslanirnar Iceland hér á landi.  Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Hluturinn er keyptur af Jóhannesi Jónssyni sem eftir söluna á 12% hlut í Ísland-Verslun. Annar hluthafi í Ísland-Verslun hf. er félag í eigu Iceland Foods í Bretlandi, sem á 37% hlut. Samhliða sölunni lætur Jóhannes Jónsson af störfum sem framkvæmdastjóri félagins og tekur við sem stjórnarformaður, samkvæmt fréttatilkynningu.

Seldur vegna veikinda

Haft er eftir Jóhannesi í fréttatilkynningu: „Þetta var nú ekki planið hjá mér.  En í ljósi þess að veikindi mín hafa tekið sig upp aftur mun ég þurfa að verja tíma mínum og kröftum í að takast á við þau. Ég mun því ekki geta sinnt  uppbyggingu á Iceland-búðunum eins og þarf að gera. Ég verð því að eftirláta öðrum það verkefni. 

Ég treysti Árna Pétri fullkomlega fyrir því verkefni.  Við höfum unnið saman áður og hann þekkir vel inn á matvörumarkaðinn. Undirbúningur og opnun verslana Iceland hér á landi hefur verið ævintýri líkast og er ég þakklátur þeim miklu og góðu móttökum sem ég hef fengið hjá viðskiptavinum okkar og óska eftir áframhaldandi stuðningi frá þeim. Það er von mín og trú að Iceland eigi eftir að vaxa og styrkjast á íslenska matvörumarkaðinum.“

Árni Pétur segir í fréttatilkynningu að kaupin séu spennandi tækifæri.  „Þrátt fyrir að ekki sé langt síðan að fyrsta Iceland-verslunin hafi verið opnuð hér á landi þá sé félagið og vörumerki þess þekkt.  Móttökur neytenda hafa verið góðar enda bjóði félagið upp á ýmsar vörunýjungar og lágt verð.  Stefnt sé að áframhaldandi sókn inn á íslenska matvörumarkaðinn.“

Árni Pétur keypti Tíu-ellefu verslunarkeðjuna af Arion banka sumarið 2011. Hann var áður forstjóri Teymis og Vodafone  en lét af störfum hjá félögunum árið 2009. Hann stýrði áður matvælasviði Baugs.

Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, opnaði Iceland verslun í lok júlí …
Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, opnaði Iceland verslun í lok júlí í Engihjalla í Kópavogi. Morgunblaðið/RAX
Árni Pétur Jónsson
Árni Pétur Jónsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK