Búferlaflutningar skila lægra menntunarstigi hérlendis

Samtök atvinnulífsins segja að flutningsjöfnuðurinn leiði af sér lægra menntunarstig …
Samtök atvinnulífsins segja að flutningsjöfnuðurinn leiði af sér lægra menntunarstig hérlendis mbl.is/Júlíus

Brottfluttir íbúar voru um 250 umfram aðflutta á árinu 2012. Almennt má gera ráð fyrir því að Íslendingar sem flytja til annarra landa fái þar vinnu og séu því sérmenntaðir því ella er erfitt að hasla sér völl á vinnumarkaði erlendis. Á móti má ætla að flestir aðfluttir erlendir ríkisborgarar séu ekki með starfsmenntun, og þótt þeir hafi hana eiga þeir oft erfitt með að nýta sér hana vegna tungumálaerfiðleika. Þetta kemur fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins, en þar er sagt að flutningsjöfnuðurinn leiði af sér lægra menntunarstig landsmanna.

Árið 2012 fluttu 935 fleiri Íslendingar brott af landinu en til þess eða sem nam 0,3% af íbúafjölda. Í heild fluttu rúmlega fjögur þúsund Íslendingar frá landinu en rúmlega þrjú þúsund til þess. Nettó brottflutningurinn var mestur á þriðja ársfjórðungi og minnstur á þeim fjórða eins og verið hefur undanfarin ár.

Samtökin segja að ekki liggi fyrir neinar opinberar tölur um menntun að- og brottfluttra, en líkur standa til þess að frá Íslandi flytjist að mestu leyti sérmenntað vinnuafl og til landsins flytjist og setjist að fólk í miklum mæli án framhalds- eða starfsmenntunar. Flest bendir því til þess að neikvæður flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara og streymi útlendinga til landsins lækki menntunarstig íbúa á landinu og dragi úr framboði sérhæfðs starfsfólks á vinnumarkaði.

Á síðustu tveimur áratugum hefur flutningsjöfnuður Íslendinga einungis verið jákvæður í þrjú ár, þ.e. árin 1999, 2000 og 2005, en hin árin 17 hefur hann verið neikvæður. Á þessu tímabili voru brottfluttir Íslendingar umfram aðflutta rúmlega 14.000 eða sem nam 0,24% af íbúafjölda að meðaltali árlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK