Orkuveitan selur höfuðstöðvarnar

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur mbl.is/Ómar Óskarsson

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag, með fyrirvara um staðfestingu eigenda, kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1 og Réttarhálsi 1 í Reykjavík. Segir í tilkynningu að salan sé mikilvægur þáttur í framvindu „Plansins“, aðgerðaáætlunar Orkuveitunnar og eigenda, með því að lausafjárstaða fyrirtækisins batnar sem söluandvirðinu nemur.

Tilboðsfjárhæðin er 5,1 milljarður króna og verður söluhagnaður Orkuveitunnar, það er mismunur söluverðs og bókfærðs verðmætis, um 600 milljónir króna. Straumur fjárfestingabanki gerði tilboðið fyrir hönd óstofnaðs félags með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlega fjármögnun.

Í samþykkt stjórnar Orkuveitunnar felst að Orkuveitan muni leigja húseignirnar til 20 ára og hafa rétt til að kaupa þær aftur eftir 10 ár sem og við lok leigutímans.

„Við erum að vinna eftir ákaflega metnaðarfullu plani í rekstri Orkuveitunnar. Um síðustu áramót hafði það gengið eftir í öllum þáttum nema eignasölu. Sala stærri eigna er flókið viðfangsefni. Nú sjáum við fram á að geta lokið tveimur slíkum samningum, um höfuðstöðvarnar og Perluna. Þessi samningur er Orkuveitunni fjárhagslega hagstæður og það er mikilvægt að fyrirtækið eigi þess kost að kaupa eignina aftur þyki það skynsamlegt þegar þar að kemur.“ Þetta er haft eftir Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orkuveitunnar í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka