Viðmælandi Sigurðar Más í viðskiptaþættinum að þessu sinni er Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls. Miklar tafir hafa orðið á framkvæmdum við álverið í Helguvík. Þegar grænt ljós verður komið á öll mál segir Ragnar að um tvö til tvö og hálft ár muni taka þangað til framleiðsla hefjist, en nú þegar hefur um 15 milljörðum verið varið í verkefnið að sögn Ragnars.