Samningur var undirritaður í dag á milli Vaðlaheiðarganga hf. og EFLU verkfræðistofu um verkeftirlit með framkvæmd Vaðlaheiðarganga en samningurinn var gerður samhliða frágangi samnings um gerð ganganna við ÍAV og svissneska verktakann Marti.
EFLA gerði tilboð í verkið í samvinnu við GeoTek og Verkfræðistofu Norðurlands en fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að 3-5 starfsmenn muni að jafnaði vinna að eftirlitinu á verktímanum.