Methagnaður hjá Icelandair Group

Icelandair hefur nýlega pantað Boeing 737 MAX þotur.
Icelandair hefur nýlega pantað Boeing 737 MAX þotur. mbl.is/Boeing

Hagnaður af rekstri Icelandair Group nam 57,4 milljónum dala fyrir skatta á síðasta ári, jafnvirði 7,3 milljarða króna á núverandi gengi, og jókst um 28,9 milljónir dala milli ára. Er þetta mesti rekstrarhagnaður félagsins frá upphafi.

Stjórn Icelandic Group leggur til, að arður að fjárhæð 1,5 milljarðar króna verði greiddur til hluthafa á þessu ári.

Eftir skatta nam hagnaður Icelandair Group 44,3 milljónum dala, jafnvirði 5,63 milljarða króna, á síðasta ári. Á síðasta ársfjórðungi nam svonefndur EBITDA hagnaður 5,9 milljónum dala, 750 milljónum króna, og jókst um 7 milljónir dala á milli ára. Eiginfjárhlutfall var 39% í árslok 2012 samanborið við 36% í árslok 2011.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK