Landsbankinn stökk fram úr Íslandsbanka sem sú fjármálastofnun sem viðskiptavinir eru ánægðastir með. Þetta kemur fram í niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2012 sem birt var í morgun. Bankinn hækkaði um 5,6 stig milli ára og mældist með 62,9 stig. Meðaltal allra fjármálafyrirtækja er 60 stig. Í fyrra var Íslandsbanki efstur, en athygli vekur að allir bankarnir bæta við sig og því ljóst að ánægja viðskiptavina með bankastofnanir hefur aukist milli ára.
Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu frá bankanum að þessi niðurstaða sé mikilsverður áfangi á langri leið og ástæða sé til að gleðjast: „Við höfum lýst því að við ætlum okkur forystu á bankamarkaði. Niðurstöður íslensku ánægjuvogarinnar sýna glöggt að við erum á réttri leið. Við höfum lagt mikla áherslu á að treysta samband okkar við viðskiptavini á síðustu árum og það er gleðilegt fyrir starfsfólk að uppskera með þessum hætti.“