Sigríður í kerfisáhætturáð Danmerkur

Sigríður Benediktsdóttir, hefur verið skipuð í kerfisáhætturáð Danmerkur.
Sigríður Benediktsdóttir, hefur verið skipuð í kerfisáhætturáð Danmerkur. mbl.is/Ómar

Sigríður Benediktsdóttir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands hefur verið skipuð í nýstofnað kerfisáhætturáð Danmerkur.

Það er Annette Vilhelmsen atvinnu- og nýsköpunarráðherra Danmerkur sem skipar kerfisáhætturáðið, en það er skipað 10 einstaklingum, þ.e. fulltrúum Seðlabanka Danmerkur, Fjármálaeftirlits Danmerkur, ráðuneyta á sviði efnahags-, atvinnu- og fjármála og óháðum sérfræðingum. Sigríður er skipuð í ráðið sem slíkur. Seðlabankastjóri Danmerkur er formaður ráðsins.

Greinir eftirlit með fjárhagslegum áhættuþáttum í Danmörku

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands er hlutverk kerfisáhætturáðs Danmerkur að greina og hafa eftirlit með fjárhagslegum áhættuþáttum í Danmörku, vara við hættu á því að kerfisáhætta sé að myndast, koma með tillögur til ríkisstjórnar um lagabreytingar á sviði fjármála sem geta dregið úr því að kerfisáhætta myndist og gefa skýrslu til Kerfisáhætturáðs Evrópu (ESRB).

Lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla árið 2005

Sigríður Benediktsdóttir hóf störf í Seðlabanka Íslands fyrir rúmu ári, þann 1. janúar 2012. Áður var hún aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Sigríður lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í tölvunarfræðum frá sama skóla 1998. Hún lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla í maí 2005.

Frá árinu 2007 starfaði Sigríður sem kennari og aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Samhliða því stundaði hún rannsóknir á sviði fjármálahagfræði, með áherslu á fjármálamarkaði. Hún starfaði sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Bandaríkjanna á árunum 2005-2007. Sigríður var skipuð í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið árið 2008

Binda vonir við að setan stuðli að miðlun reynslu á milli landanna

Í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands segir að skipun Sigríðar Benediktsdóttur í kerfisáhætturáð Danmerkur sé mikil viðurkenning fyrir hana persónulega, en einnig viðurkenning á því starfi sem undanfarið hafi átt sér stað á þessu sviði innan Seðlabanka Íslands. Þá segir að Seðlabanki Íslands bindi miklar vonir við að seta Sigríðar í kerfisáhætturáði Danmerkur muni stuðla að miðlun reynslu á milli landanna og gagnast Íslandi við uppbyggingu eftirlits með - og viðbrögðum við kerfisáhættu í fjármálakerfinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK