Í gær lauk rafrænu uppboði á tíðniheimildum fyrir 4G þjónustu sem haldið var á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar. Líkt og áður hefur komið fram tóku fjórir aðilar þátt í uppboðinu, þ.e. 365 miðlar ehf., Fjarskipti hf., Nova ehf. og Síminn hf.
PFS mun nú fara yfir framkvæmd uppboðsins í samræmi við skilmála þess. Að jafnaði skal sá aðili sem hæsta boð átti í tíðniheimild fá henni úthlutað, leiði yfirferð stofnunarinnar á framkvæmd uppboðsins ekki til annars, eða málefnaleg sjónarmið leiði til annarrar niðurstöðu. Áskilur stofnunin sér þrjár vikur til að ganga frá útgáfu heimildanna.
Þetta kemur fram í frétt á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.
Heildarfjárhæð boða í allar tíðniheimildir var 226.011.000,- kr. en lágmarksboð hljóðuðu upp á 205.000.000,-. Munu endanlegir fjármunir renna til fjarskiptasjóðs, að frádregnum afslætti af tíðniheimild A. Afslátturinn er gefinn vegna mikilla uppbyggingarkrafna næstu kynslóðar farnets á tíðniheimild A sem gerðar eru í ljósi samfélagslegs mikilvægis þess.
365 miðlar ehf. áttu hæsta boð í tíðniheimildir A og B (2x15 MHz á 800 MHz tíðnisviðinu), Fjarskipti hf. átti hæsta boð í tíðniheimildir D, E og I (2x10 á 800 MHz og 2x5 á 1800 MHz tíðnisviðunum), Nova átti hæsta boð í tíðniheimildir C og J (2x5 á 800 MHz og 2x5 á 1800 MHz tíðnivsiðunum) og Síminn hf. átti hæsta boð í tíðniheimildir F, G og H (2x15 MHz á 1800 MHz tíðnisviðinu).
Niðurstaða uppboðsins þýðir að nýtt fjarskiptafyrirtæki, 365 miðlar, sækir nú inn á íslenskan fjarskiptamarkað. Með því að bjóða í tíðniheimild A hefur fyrirtækið skuldbundið sig til að byggja upp næstu kynslóðar farnet sem ná skal til 99,5% íbúa á hverju skilgreindu landsvæði fyrir sig. Farnetið verður því eitt stærsta fjarskiptanet landsins. Uppbyggingu þess á að vera lokið fyrir lok árs 2016 og skal það þá bjóða upp á 10 Mb/s gagnaflutningshraða. Gagnaflutningshraðinn verður síðan aukinn og skal vera orðinn 30 Mb/s í lok árs 2020.