Þarf að greiða 100 milljónir í sekt

Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í máli sem snerist um samkeppnisbrot lyfjabúðarinnar Lyf og heilsa. Fyrirtækið þarf að greiða 100 milljónir fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína þegar fyrirtækið greip til aðgerða sem beindust gegn Apóteki Vesturlands.

Samkeppniseftirlitið lagði 130 milljónir í stjórnsýslusekt á Lyf og heilsu árið 2010. Sú niðurstaða var staðfest í úrskurðarnefnd samkeppnismála, en sektin var lækkuð niður í 100 milljónir. Lyf og heilsa höfðaði þá dómsmál til að reyna að fá þessari ákvörðun breytt. Fyrirtækið hefur nú tapað málinu bæði í héraðsdómi og Hæstarétti.

Að mati héraðsdóms voru brotin „alvarleg, miðuðu að því að hindra innkomu nýrrar lyfjaverslunar á markað, sem stefndi sat áður einn að, og síðan að því að veikja hinn nýja aðila og raska samkeppni“ og staðfestir Hæstiréttur þá niðurstöðu.

Forsaga málsins er sú að Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á ætluðum brotum Lyfja og heilsu með húsleit í september 2007. Rannsóknin hófst í kjölfar ábendinga um að fyrirtækið hefði gripið til aðgerða til að hindra að Apótek Vesturlands, sem þá var nýstofnað, næði að hasla sér völl á Akranesi.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Lyf og heilsa hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með skipulagðri atlögu gegn Apóteki Vesturlands, sem beinlínis hafði það að markmiði að raska samkeppni.

Aðgerðir Lyfja og heilsu munu annars vegar hafa falist í stofnun svonefnds vildarklúbbs sem var ætlað að tryggja að mikilvægir viðskiptavinir myndu ekki hefja viðskipti við Apótek Vesturlands.

Hins vegar fólust aðgerðirnar í því sem Lyf og heilsa nefndi „baráttuafslætti“. Um var að ræða verulegan afslátt á mikilvægum lyfjum, sem einungis voru í boði á Akranesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK