Nikkei hlutabréfavísitalan lækkaði í Tókýó í dag um 1,08% eftir að hafa lækkað um rúm 2% í gær. Á sama tíma hækkaði jenið gagnvart helstu gjaldmiðlum.
Í Sydney hækkaði hlutabréfavísitalan um 0,38% og í Hong Kong hefur vísitalan hækkað um 0,31%. Í Seúl lækkaði vísitalan um 0,49%.