Fjármálaeftirlitið hefur auglýst eftir aðstoðarforstjóra, en starfið er nýtt í núverandi skipulagi og er aðstoðarforstjóri staðgengill forstjóra í hans fjarveru. Í tilkynningu á heimasíðu eftirlitsins segir að hlutverk aðstoðaforstjóra sé að að koma að uppbyggingu eftirlitsins og vera leiðandi, ásamt forstjóra, í starfi Fjármálaeftirlitsins varðandi fjármálastöðugleika og við stefnumörkun almenns eftirlits á fjármálamarkaði.
Auglýsing um starfið hefur verið birt á Starfatorgi, auk þess sem hún mun birtast í blöðum um helgina. Þar er lýst helstu verkefnum og ábyrgð hins nýja aðstoðarforstjóra, hvaða kröfur hann þarf að uppfylla og til hvers er horft við ráðninguna.