Sigurjón Arason prófessor og yfirverkfræðingur hjá Matís hlaut í dag sérstaka viðurkenningu samstarfsvettvangs fyrirtækja innan Íslenska sjávarklasans fyrir framlag hans til aukinnar verðmætasköpunar í íslenskum sjávarútvegi. Viðurkenningin var veitt í Vorboði sem haldið var í Húsi Sjávarklasans.
Sigurjón hefur haft forystu um ýmsar rannsóknir og þróun í vinnslu sjávarafurða undanfarna þrjá áratugi sem skilað hafa verulegum ábata fyrir íslenskt þjóðarbú. Þá hefur Sigurjón þjálfað og kennt þúsundunum einstaklinga í sjávarútvegi og meðal annars á vettvangi Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.
Samkvæmt athugun Íslenska sjávarklasans á verðmætaaukningu í sjávarútvegi kemur í ljós að þrátt fyrir að afli útgerða hafi minnkað úr 460.000 tonnum í 180.000 tonn milli áranna 1981 og 2011, tvöfaldaðist útflutningsverðmætið hins vegar. Þá aukningu má þakka stórbættri nýtingu hráefnis þar sem framleiðslan fór að snúast frekar um gæði en magn. Í ræðum á Vorboðinu var Sigurjóni þakkað hans hlutverk við að ná þessum árangri, en hann hefur verið viðloðin rannsóknar- og þróunarstarf í greininni frá því 1978.
Við afhendingu viðurkenningarinnar sagði Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja frá því að Rannsóknarsjóður síldarútvegsins hafi lýst áhuga á að veita styrki í nafni Sigurjóns til nemenda eða fræðimanna sem stunda rannsóknir í sjávarútvegi.